þá er loksins komið að því gott fólk! :) Maður er búinn að bíða fullur eftirvæntingar eftir þessum árlega atburði í allt sumar og loksins er biðin á enda!
This is going to be legend-wait for it-ary! Ef þið eruð á ferðinni um Suð-Austur hornið þá mæli ég endalaust með því að þið lítið við á þessarri flugeldasýningu, en hún verður haldin á slaginu miðnætti í kvöld! :)
Annars er ekki mikið að frétta héðan úr sveitinni, heimför eftir 5 daga og 8 vaktir! Við Agnes ætlum að rúlla í bæinn beint eftir vinnu hjá okkur um kvöldið á fimmtudeginum 20.ágúst, komum líklegast ekki til Reykjavíkur fyrr en um klukkan 4 um nóttina :) en það er bara spennandi! :) Á föstudeginum ætla ég mér svo að skella mér í litun og svo er afmælis/kveðjupartý hjá Agnesi minni þar sem hún er að fara að hverfa til Boston 26.ágúst! Á laugardagsmorgninum verður svo haldið til Stykkishólms á Danska daga! sem verður ekki slæmt.... það var allavega mjög gaman í fyrra og ólíklegt er að skemmtunin verði eitthvað síðri þetta árið ;) þannig að þetta verður mjög busy helgi hjá mér, og ég fæ ekki að njóta rólegheitanna heima hjá mér fyrr en á mánudeginum... en ég bíð eftir þessu öllu saman með óþreygju! :)
Ást á ykkur öll!
15. ágúst 2009 klukkan 15:08
María Dís 1 athugasemd
í tilefni þess að liðnir eru uþb. 2 og hálfur mánuður síðan ég smellti inn bloggfærslu síðast þá hef ég ákveðið að láta loksins til skarar skríða og þeyta frá mér einu hörku bloggi :D
Ég get ekki sagt annað en að sumarið sé bara búið að vera ósköp indælt ;) margt skemmtilegt búið að gerast hér hjá mér, far-far away from everything :)
veðrið búið að vera óskaplega ljúft. umhverfið ekkert lítið fallegt, mikið að gera í vinnunni, þónokkrar ferðir í bæinn sem voru afskaplega fínar, hrikalega mikið slúður sem gerist á svona litlum og afskekktum stöðum og endalaust drama í gangi ;)
Það er ótrúlegt, eins og ég hef verið langt fjarri drama í lengri tíma, þar sem dramað virðist ekki elta mig, þá er mjög fyndið að sjá hvað dramað virðist elta alla aðra í kringum mig... alltaf eitthvað rugl í gangi hjá öllum og endalaust vesen... alveg er þetta fyrir ofan minn skilning :)
Hey já, ég verð líka að troða því hingað inn, að ég fór í útilegu í skaftafell um daginn, með mömmu, pabba, rós, gumma, höllu og ernu :) þetta var klárlega ein sú skemmtilegasta útilega sem ég hef farið í þrátt fyrir háan meðalaldur fólksins! :) allskonar leikir réðu ríkjum, frisbeedisk var kastað eins og enginn væri morgundagurinn, drykkja fór fram úr björtustu vonum og ekki hægt að segja að hóf hafi verið á henni, gamla kellingin meira að segja fór í black out þarna eitt kvöldið... ekki oft sem ég hef séð foreldra mína í svo skemmtilegu ástandi :D litla sys skemmti sér líka held ég alveg ágætlega þrátt fyrir að vera ein með "gamla" fólkinu... hún fékk allavega alveg hellings athygli frá okkur. Gugga tók líka upp tarot spilin í þessarri útilegu og spáði fyrir öllu kviku á svæðinu, það var einstaklega áhugavert og skemmtilegt :)
En nóg um það... kannski ég ætti að koma mér í svefn svo ég verði fersk í vinnunni í fyrramálið... það þýðir ekkert annað :D
Ég sé svo til hvort ég nenni ekki að vera dugleg og blogga um allt sem gerist hér út í sveit (sem er hreint og beint út sagt ekki neitt) ;)
Hafið það allavega gott...
20. júlí 2009 klukkan 00:47
María Dís 1 athugasemd
Nú er maður loksins kominn með nýja tölvu, og það líka ekkert lítið flotta :) Ég er að minnsta kosti mjög ánægð með hana, enda gamla tölvan orðin gömul og úr sér gengin, brotin og andsetin... Nú eru aðeins 12 dagar í að maður leggi land undir fót og skelli sér í Skaftafell til að vinna allt sumarið fyrir verði þessarrar nýju tölvu :) Þennan sama dag og ég fer í Freysnesið er margt um að vera og má þar hæst nefna að Stefan kemur aftur til landsins og stoppar í 2 vikur í fríi í Freysnesinu góða áður en hann skellir sér í að vinna í þýska hernum í allt sumar.... einnig þennan sama dag er úrslitakvöld Eurovision og verður því mjög glatt á hjalla hjá okkur í Skaftafellinu :)
Nú er ég að spá í að eyða þessu guðdómlega kvöldi í allt annað en próflestur, þó ég megi vart við því... enda erfitt próf á næstu grösum... Hef ég ákveðið að verðlauna erfiði dagsins með smá frítökurétti :D
hins vegar hef ég lítið meira að segja ykkur í dag svo ég ætlast bara til þess í staðinn að þið hættið að lesa hér og farið að gera eitthvað skemmtilegt!
Það er alveg merkilegt hvað það er skondið að fara í klippingu... sérstaklega á stofu sem þú ert ekki fastakúnni á... Ég uppgötvaði þessa undarlegu skemmtun einmitt fyrr í dag þegar ég settist í stólinn á hárgreiðslustofu sem ég hef ekki farið á í tæp 3 ár. Ég kom þarna inn og enginn kannaðist við mig, enginn þekkti mig og því ekki við manninn mælt að þegar ég sest í stólinn byrjar hárgreiðsludaman að spurja mig spjörunum úr, spyr mig allt um daginn og veginn, hvað ég sé að gera, hvað mér finnist skemmtilegt að gera og allt þar fram eftir götunum... Merkilegt hvað ein manneskja á stóran spurninga-kvóta...þegar svo loksins liturinn var kominn í hár mitt og spurningaflóðið stöðvaði þá fékk ég að heyra allt um líf manneskjunnar við hlið mér, hvernig börnin hennar höfðu það, hvað þau væru að læra og nefndu það... þarna á einhverjum 10 mínútum kynntist ég manneskjunni í stólnum við hliðina á mér liggur við betur en ég þekki sjálfa mig og það án þess að svo mikið sem horfa á hana eða segja orð við hana... En skemmtuninni var ekki lokið þarna, ónei... heldur þá fékk ég að kynnast svona 2 manneskjum til viðbótar við þetta, einstaklega skemmtilegt alveg hreint... Aftur á móti fékk ég ekki að vita neitt um hárgreiðslukonuna, veit ekki einusinni hvað hún heitir... sem er afskaplega fyndið þar sem hún gæti örugglega skrifað heila ævisögu um hvern og einn viðskiptavin sem gengur inn á þessa stofu...
En nóg um þessa skemmtun... ég á að heita að vera á fullu í próflestri, hvað sem það nú er... farin að kvíða örlítið fyrir þessum blessuðu prófum þar sem ég veit ekki alveg hversu vel ég kann námsefnið... en það kemur í ljós þegar einkunninar koma í hús... og ég vona bara það besta :)
svo ég minnist líka örlítið á veðrið úti...
en hvað í FJANDANUM er málið?? eins og það var ljúft og æsilegt veður í gær þá er veðrið í dag hin hreinasta martröð! skil ekki hverjum dettur í hug að skapa þessa þvælu, maður getur varla stigið fæti sínum út fyrir hússins dyr því þá tekst maður á loft og lendir ekki fyrr en einhversstaðar í skaftafelli... ekki ljúft, enganveginn ljúft!
Annars er ég bara búin að hafa það nokkuð gott ef þið skylduð hafa verið að velta því fyrir ykkur.. nældi mér í hörkudjamm um helgina ásamt því að slaka svona líka vel á því og njóta lífsins! alltaf líka frábært þegar maður hittir, sér eða heyrir í fólki sem er búið að vera týnt úr lífi manns örlítið of lengi, það kætir geðið manns alveg óstjórnlega mikið og er alveg hreint ótrúlegt hvað ein lítil orðsending getur skipt sköpum í þessum efnum... það er eitthvað sem ég er ekki nógu góð í en gæti vel verið að maður bæti eitthvað úr því fyrst að það er svona notalegt að heyra í vinum og vandamönnum sem hefur liðið of langur tími síðan síðast...
Ég vona að lífið sé að fara vel með ykkur og að þið getið notið dagsins eins vel og ég :) mitt ráð til ykkar : það að fara út í þetta veður er geggjun, enginn með viti ætti að láta sjá sig úti í þessu nema pósturinn... hinsvegar er það æðislegt að sitja inni í hlýjunni, sötra nesquick með röri og horfa út um gluggann á þetta viðbjóðslega veður og vitlausa fólkið sem fýkur hér fram og til baka fyrir utan gluggann minn... mæli eindregið með því að slaka bara á og gera eitthvað fyrir ykkur sjálf í dag!
28. apríl 2009 klukkan 17:20
María Dís 1 athugasemd
Þá er algjörlega kominn tími á nýja bloggfærslu... og vel það!
Ég er loksins komin aftur í borg óttans eftir langa en jafnframt einstaklega notalega dvöl í Skaftafelli... Ég ætla að henda inn einhverjum myndum úr þessu ferðalagi mínu á facebook einhvern næstu daga svo endilega lítið á myndirnar þá :) Annars hef ég það bara ágætt... prófin að byrja hjá mér eftir rúma viku svo nú er um að gera að spýta í lófana og smella sér af stað í lestur... ekki samt alveg eins og ég nenni því eitthvað afskaplega mikið neitt...
Ég er ekki að meta þetta herra rok sem er í gangi þessa dagana, ég þurfti víst að keyra í 4 klukkutíma í þessum viðbjóði í gær og það var ekki alveg það skemmtilegasta sem ég hef gert, en ég lifði það af :)
Ég hallast sífellt meira og meira að því að ég kunni ekki að skrifa blogg, ég hef ekkert að segja, veit ekkert hvað ég á að segja og er bara í tómu tjóni hérna... að reyna að koma einhverju frá mér í skyldurækni sem ég veit ekki alveg í garð hvers þessi skyldurækni er því það eru ekki margir sem líta við hér :) takk engu að síður þið sem gerið það...
Mig langar að vita hvort gaurinn sem smellti sér út í Jökulsárlón á stuttermabolnum í grenjandi rigningu sé enn á lífi, hvaða sjúkdóma hann hafi nælt sér í og hvernig honum líði eftir þessa lífsreynslu... en ég á líklegast aldrei eftir að sjá hann aftur... bömmer... Ég sá samt líka fullt af selum í lóninu, þeir voru heavy sætir... og svo seinna þann dag sá ég hreindýr á ráfi við þjóðveginn... viðburðarríkur dagur! keyrði svo alla leiðina til baka frá Höfn til Skaftafells með fullan Yaris af áfengi.. ekki slæmt það! :)
allavega þá ætla ég ekki að íþyngja ykkur meira í bili, ég ætla enn einusinni að reyna að vera duglegri bloggari og sjáum hvernig það gengur í þetta skiptið!
Nýliðin helgi var hreint út sagt frábær í alla staði :)
Á föstudagskvöldið síðasta brunuðum við Vestur í seinna fallinu og lentum ekki á Stykkishólmi fyrr en í kringum 01:00 ... þá tók við þessi heljarinnar drykkja og skrall og skemmtum við okkur konunglega út í ystu æsar! Laugardagurinn var svo bara eins afslappaður og laugardagar gerast, við fórum í Bónus og versluðum í matinn og váááá hvað við erum miklir mathákar! Á meðan stelpurnar versluðu fyrir einhvern 3.000 kall þá tókst mér og strákunum að eyða 15.000 kalli! og átum það nú eiginlega allt! nææææææs.... Okkur stelpunum tókst svo að töfra fram þessar ljúffengu kjúklingabringur með rjóma-piparosti og rjóma-hvítlauks og graslauks osti og bráðnum osti yfir. Ég ætla að þakka Agnesi kærlega síðan fyrir ljúffengt salat sem hún skar niður (þrátt fyrir að hafa gleymt að setja baunaspírurnar út í það) :P Síðan fengum við stelpurnar að njóta þess að melta og sötra hvítvín og freyðivín eftir matinn á meðan strákarnir sáu um frágang :) mikið ósköp eruð þið duglegir greyin! :P Laugardagskvöldið var svo skrautlegt að ég veit ekki alveg hvort vert sé að segja frá því nema í hendingskasti, potturinn var aðal pleisið þegar liðið var á nóttina, það var heiðskírt og stjörnubjart og notalegt! Síðan var bara rólegur sunnudagur og farið heim þegar líða tók á kvöldið... Vildi bara þakka fyrir mig og þakka fyrir frábæra helgi elskurnar :*
Ég hefði þó persónulega viljað vera fram á miðvikudag í bústaðnum, það hefði verið svo nææææs! :) Er ekki alveg að nenna þessu rugli með að þurfa að læra og lesa og mæta í skólann... vil bara rólegheit og frið! En maðr fær víst ekki allt sem maður vill, svo ég verð bara að láta mér nægja það að fara ekkert vestur fyrr en næsta sumar :P eins notalegt og það er! :(
Annars er margt spennandi framundan! Árshátíð Mágusar verður 20.febrúar, það verður örugglega mjög fínt... svo er endalaus urmull af vísindaferðum og sukki, eitthvað að gerast á hverjum einasta föstudegi þangað til önnin er búin... sem er ekki alveg það skemmtilegasta því ég er svo oft að vinna á föstudagskvöldum :) ætli maður reyni ekki eitthvað að fixa þetta til :P það væri nú heldur svekkjandi að komast ekki í neitt af þessu sukkeríi...
En ég ætla að skella mér framúr og fá mér hollan og góðan morgunmat, hugsanlega hlusta á skemmtilega tónlist líka og njóta þess að ég þarf ekki að mæta í skólann fyrr en eftir 1 og hálfan tíma! :)
nú sit ég í Háskólabíói og háma í mig bláberjaskyr :) mér líður afskaplega vel í augnablikinu... Ég vona að dagurinn líði hratt í ljósi þess að leið og vinnan hjá mér í kvöld er búin komum við til með að skunda af stað vestur á Stykkishólm, þar verður helgin nýtt í hvítvínsdrykkju og afslöppun. Ætli ég reyni ekki að komast í gegnum smá lærdóm einhversstaðar á milli í þessu brjálaða bókaða prógrammi hjá mér upp í sumarbústað :) (prógrammið er semsagt að drekka hvítvín og slappa af)
Ég er búin að vera massa dugleg í ræktinni í þessarri viku, búin að fara 4 sinnum, ætlaði að fara í dag en það var of margt óklárað fyrir ferðina í kvöld.
Ég er semsagt að fara að vinna uppá IBIZA á eftir, endilega kíkið við. við erum með brjálað tilboð í gangi núna, 10 tíma kort - enginn gildistími (það rennur ekki út á tíma) á aðeins 3990 krónur!! það er hlægilegt! hugsið ykkur... með því að kaupa kort þá eruð þið að spara 501 krónu á staka tímanum ;) Held að símalínan á IBIZA sé ennþá biluð en hringið bara í GSM símann minn og pantið tíma :)
en núna er tíminn byrjaður svo ég ætla að fylgjast með!
Nú er maður loksins byrjaður í Háskólanum. Það er ótrúlega skrýtið að vera nýr í risastórum sal og þekkja ekki eina einustu manneskju. Maður fær einhvers konar furðulega minnimáttar tilfinningu, og ég er nú ekki mjög þekkt fyrir að vera minni máttar.
Stundartaflan mín er hreint og beint hlægileg, sérstaklega miðað við minn aldur og fyrri störf. Ég byrja kl. 10 á mánudögum, kl. 13:20 á þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum og klukkan 15:00 á miðvikudögum. sem er ekkert alveg það besta fyrir mig miðað við það að allir tímarnir í tónlistarskólanum eru seinnipartinn eða á kvöldin, og ég er ekki alveg þekkt fyrir að vera sú manneskja sem vaknar snemma til þess eins að fara að læra. Þvert á móti þá er ég þekkt fyrir að vera stelpan sem helst mundi sofa allan sólarhringinn ef hún ætti möguleika á því. Þannig að ég er mikið að spá í því að reyna að notfæra mér hæfileika mína til að vakna snemma á morgnana til að mæta í ræktina til þess að aðstoða mig við þessa "leti". Átakið gengur enn mjög vel og ég er staðráðin í að halda þessu áfram svo aukakílóin fari að hrynja af mér líkt og pallíetturnar af pallíettukjólnum mínum gera... you know what i'm talking about :)
Fyrir utan að þekkja engann í viðskiptafræðinni þá er skólinn bara að tríta mig fremur vel :) Flestir áfangarnir sem ég er í eru bara alveg þokkalega áhugaverðir, ég er komin í hópa í hópvinnuverkefnunum með fólki sem ég veit ENGIN deili á og krossa fingur og vona það besta um þetta fólk. Það er aldrei að vita... kannski eru þetta mannræningjar sem eru að plotta það að ræna mér og krefja Gumma um lausnargjald... þó að það væri nú ekki sterkur leikur því þeir mundu í mesta lagi fá afhent bónus-kortið hans :P
Jæja, ég ætla að fara að fylgjast með í tíma... bæjóts!
já það er sko sannarlega kominn tími á nýtt blogg.
það er svei mér þá mikið búið að gerast síðan síðasta bloggfærsla var skrifuð svo ég ætla að stikla á stóru svo þið gefist ekki upp á að lesa :)
* það voru jól, þau voru fín.. maturinn var æðislegur, pakkarnir voru mjög fínir, slökunin var frábær, vinnan var taugh og kvöldin voru ómetanleg * það komu áramót og þau voru eins og áramótin gerast best... mun minna um sprenginar en síðustu árin og var skræfan ég því fegin, maturinn var einstaklega ljúffengur enda búið að bíða eftir heilögum áramóta-kalkúni í heilt ár, upp á mínútu... síðan voru fjölskylduboðin bæði alveg með besta móti :) að loknum hasarheitum í sprengingum og áramótaknúsum var stefnan tekin á heimili mitt, þar hittumst við, ég, Agnes, Edda, Gummi, Gummi, Davíð og Sigga og Guðlaug droppaði við eftir að Agnes elskan hafði skundað á fund vinnunnar... þetta kvöld var mikið spilað, mikið hlegið og mikið gaman :) * áramótaheit var strengt með öllu tilheyrandi... var það lof um heilsusamlegra mataræði, umfangsmikla breytingu á hreyfingar-málum mínum sem höfðu legið í dvala allt of lengi, nammi-og-gos bann með öllu móti (eða svona nánast til) og brosmildari dagar. * áramótaheitið hefur gengið nokkuð vel hingað til og er ég búin að vera alveg þrusudugleg að standa við nammibindindi, hollari matarvenjur og er búin að vera alveg ólympíu-dugleg að mæta í ræktina :) þetta er söguleg stund í lífi Maríu svo þið ættuð að staldra við og taka mynd af mómentinu. * skólinn er að hefjast á fimmtudaginn hjá mér, og er ég búin að vera að slæpast að miklu leyti í marga daga í ljósi þess hve seint skólinn byrjar en það gefur mér færi á að koma mér á laggir í ræktinni og endurnæra sálina í hvíld. fyrir ykkur sem ekki vita þá er stefnan tekin á að mæta í fyrsta tímann minn í viðskiptafræði í Háskóla Íslands á fimmtudaginn :) og er mikil spenna en jafnframt dálítill kvíði í gangi hjá mér þessa dagana. * ég kom víst í íslandi í dag áðan og varð Agnes mér til mikillar skammar opinberlega þegar hún fór að ræða um bor-í-nefið í sjónvarpsviðtali. Ég vona að ég hafi komið ágætlega út úr þessu þrátt fyrir það og þjóðin haldi ekki að ég sé kross-þroskaheft :) forvitnir geta séð þetta á netinu... undir vefTV á www.stod2.is :)
ég hef takmarkað mikið að segja meira í viðbót.. já ég sagði meira í viðbót... í bili... þannig að ég ætla að segja þetta gott og hef ákveðið að setja mark mitt hærra þegar kemur að bloggmálum... :)